| |
Hreinsiferill | Efni | Staðlar | Atvinnugreinar |
Í þýska staðlinum 8592 er hreinsiaðferðum raðað niður eftir ákveðnu flokkunarkerfi (líkt skipuriti). Þeim er raðað niður eftir tegund áraunar og gefið ákveðið númer.
Staðlar sem gefa leiðbeiningar um hreinsiaðferðir eru ekki margir. Einungis aðferðir sem hafa verið í notkun í lengri tíma hafa verið staðlaðar. Má þar nefna: Háþrýstihreinsun með vatni (DIN EN 1829), hreinsun með basískum hreinsiefnum (DIN 65079), hreinsun með leysiefnum (DIN 65078, LN 2970), blásturshreinsun (DIN 65468), rafhreinsun (DIN 65473), blástur með hita/loga (DIN 32529). Nýlegar aðferðir einkum frá Bandaríkjunum hafa ekki verið settar inn í evrópska staðla.
Útkoma hreinsunar, þ.e. er árangur hreinsunar hefur verið staðlaður fyrir nokkrar aðferðir. T.d. ljósmyndir af yfirborði málma, fyrir húðun, sem hægt er að bera saman (DIN 55928, ISO 8501-8504). Sumir staðlar mæla með yfirborðsmælingum t.d. dropaprófi til að fá úr skorið að nægjanleg fita hafi verið fjarlægð. En þessar prófanir eiga ekki við allar aðferðir.
Einnig þarf að huga að öryggismálum við notkun tækjabúnaðar. Þau þurfa að vera samkvæmt stöðlum (pr EN 12921).
Niðurstaðan er sú að þýskir
og evrópskir staðlar koma að takmörkuðu gagni þegar
kemur að því að velja hreinsiaðferð sem þarf
að standast ákveðnar kröfur fyrirtækis.
Yfirlit yfir helstu staðla um hreinsun hluta (2001):
Þessir staðlar eru til á ensku og þýsku
ekki íslensku.
| Staðall |
Heiti |
Lýsing |
| DIN EN 1829 (1995) |
Háþrýstihreinsibúnaður, háþrýstivatnshreinsibúnaður, öryggiskröfur | Skilgreiningar og kröfur um öryggisbúnað fyrir háþrýstihreinsibúnað. |
| VDI/VDE 2420 (1980) |
Meðhöndlun málmyfirborðs við fínhreinsun: forvinna með hreinsun og affitun | Yfirlit (ekki tæmandi) um flestar algengar hreinsiaðferðir og hreinsiefni. |
| DIN 8200 (1982) |
Blásturshreinsiaðferðir: hugtök, flokkun aðferða | Upptalning og flokkun blásturshreinsiaðferða. |
| ISO 8501-8504 (1988 - 2000) |
Undirbúningur stályfirborðs fyrir húðun | Lýsir aðferðum fyrir ryðvörn á stáli og undirbúningi, með myndum. |
| DIN 8592 draft (1985) |
Hreinsanir í framleiðslu: niðurröðun, flokkun, hugtök | Tengir hreinsun við framleiðslu skv. DIN 8580 og setur í undirflokka. |
| DIN EN 12921 draft (1997) |
Hreinsun yfirborðs með tækjum og undirbúningur iðnaðarvarnings. | Hugtök og öryggiskröfur fyrir hreinsiiðnað sem nota vatns-, eldfima og halógenbætt hreinsiefni. |
| LN 29740 (1966) |
Leiðbeiningar fyrir gufuaffitun málmhluta með perklóretýlen. | Yfirlit um gufuaffitun og viðeigandi aðferðir. |
| DIN 32539 (1998) |
Blásturshreinsun á stál- og steinsteypuyfirborði með hita/loga | Nákvæm lýsing á aðferðum, viðeigandi búnaði og vinnsluflæði. |
| DIN 55928 (1991) |
Ryðvörn stáls með húðun og málun. | Myndir af yfirborði stáls sem hægt er að nota til hliðsjónar við undirvinnu fyrir ryðvörn. |
| DIN 58747 (1982) |
Framleiðsla á sjóntækjum (linsur/gler): Úthljóðshreinsun, stærð hreinsigrinda og íláta. | Segir til um stærð íláta og hreinsigrinda fyrir hreinsun sjóntækja með úthljóði. |
| DIN 65078 (1988) |
Loftsiglingar: Hreinsun með lífrænu yfirborðsvirkuefni. | Gróft yfirlit um hreinsiaðferðir og viðeigandi reglugerðir. |
| DIN 65079 (1987) |
Loftsiglingar: Hreinsun málmyfirborðs með basísku hreinsiefni. | Gróft yfirlit um vinnsluflæði fyrir hreinsun með basískum hreinsiefnum. |
| DIN 65468 (1991) |
Loftsiglingar: Fín og gróf blásturshreinsun. | Gróft yfirlit um blásturhreinsiaðferðir og viðeigandi vinnsluflæði. |
| DIN 65473 (1991) |
Loftsiglingar: Hreinsun og affitun með raflausn. | Yfirlit yfir vinnsluflæði og aðferðir fyrir hreinsun með raflausn. |
| New: VDA 19, ISO 16232 |
Automobile industry: Cleanliness specifications for function relevant automobilte components | Description of procedures to check the compliance with the cleanliness specifications |
Skilgreining á hreinleika
Skilgreining á magni óhreininda eða hreinleika
er ekki fyrir hendi í þýskum eða evrópskum stöðlum.
Í staðlinum DIN 55928 er talað um undirbúning yfirborðs
á stálvirki. En ekki er hægt að nota þá
skilgreiningu fyrir hreinsun á hlutum. Amerískir staðlar eru
með skilgreiningar á hreinleika og viðeigandi hreinsiaðferðir
upp að vissu marki.
ASTM (Bandarísk stofnun um prófanir og prófunarefni) setur
fram margar prófunaraðferðir sem eiga að kanna gæði
hreinsiaðferða við ákveðnar aðstæður. Í
flestum tilfellum er hreinleiki hluta ekki metinn, heldur hvort áframhaldandi
vinnsla (t.d. húðun, málun eða líming) standist
kröfur. Ameríski herinn notar staðalinn MIL-STD 1246C um mat
á hreinleika. Í staðlinum er gengið út frá
magni af ákveðnum óhreinindum á ákveðnu
yfirborði eða rúmmáli. Einingar fara eftir tegund óhreininda
(þ.e. fjöldi agna, magn eða stærð flatar). Einingarnar
eru þessar:
MIL-STD-1246 X, Y, Z stig
X: Hreinleiki miðað við fjölda agna samkvæmt
töflu. Gefin er upp fjöldi óífrænna agna á
einingu af yfirborði.
Y: Lýsing á hreinleika fyrir órokgjarnar leifar. Miðað
við töflu, magn á fleti, fjöldi á rúmmálseiningu.
Z: Annar kostur um stig hreinleika miðað við einn eða fleiri
þætti í eftirfarandi lista.
PAC: Hlutfall óhreininda á yfirborði í
prósentum.
PC: Fjöldi agna samkvæmt töflu um fjölda agna fyrir hreinleika
CVCM: Uppsöfnuð rokgjörn efni samkvæmt ASTM E595
VCM: Rokgjörn efni, ákveðinn munur frá ASTM E595, yfirlit
um prófanir
NTU: Mæling styrkleika lausnar út frá ljósdreifingu,
einingar skv. töflu, fyrir vökva
TML: Heildartap af magni samkvæmt ASTM E595
Prófanir til að meta hreinleika eru skyldubundnar. Þessi staðall og viðeigandi stig hreinleika er settar fram miðað við mjög háar kröfur, þar sem þær eru miðaðar meðal annars fyrir flug- og geimtækni. Það er ekki mælt með að nota þessa staðla fyrir hefðbundna framleiðslu því þær prófanir sem eru notaðar eru mjög dýrar.
Prófanir og greiningaraðferðir:
| Hraðpróf fyrir sýnileg óhreinindi | ||
| Aðferð | Greining | Upplýsingar |
| Sjónrænt mat | Mat á hreinleika/blettir á yfirborði | Huglægt mat: blettir eða blettalaust |
| Hraðpróf fyrir fitu og olíu | ||
| Aðferð | Greining | Upplýsingar |
| Dropapróf | Breytingar á vætingu málmyfirborðs verða sýnilegar | Sýnir vatnsfælin óhreinindi (olía/fita) |
| Úðapróf | Breytingar á vætingu málmyfirborðs verða sýnilegar | Sýnir vatnsfælin óhreinindi (olía/fita) |
| Nígrósínpróf(dökkblátt litarefni | Breytingar á vætingu málmyfirborðs verða sýnilegar | Sýnir vatnsfælin óhreinindi (olía/fita) |
| “Solvent Red” próf | Breytingar á vætingu málmyfirborðs verða sýnilegar | Sýnir vatnsfælin óhreinindi (olía/fita) |
| Blekpróf | Breytingar á vætingu málmyfirborðs verða sýnilegar | Yfirborðsspenna |
| Snertihornsmæling | Breytingar á vætingu málmyfirborðs verða sýnilegar | Yfirborðsspenna |
| Próf með útfjólubláum geislum | Olía verður sýnileg með flúrljóma frá útfjólubláum geislum | Flúragnir |
| Hraðpróf fyrir lituð óhreinindi | ||
| Aðferð | Greining | Upplýsingar |
| Þurrkupróf | Agnir verða sýnilegar | Gráir blettir á hvítum klút |
| Próf með límbandi | Agnir verða sýnilegar | Fjöldi og stærð agna |
| Sköfun | Agnir verða sýnilegar | Fjöldi og stærð agna |
| Greining á oxíðhúð eða annars konar húð á yfirborði | ||
| Aðferð | Greining | Upplýsingar |
| Koparsúlfatpróf | Yfirborðshúð kemur í veg fyrir koparhúð í koparsúlfatlausn | Hvarfgirni |
| Kóngablá-próf | Yfirborðshúð kemur í veg fyrir bláa bletti í hexacýanóferrat lausn (K3Fe(CN)6) | Hvarfgirni |
| Skautun | Með því að nota spennu eða straum fást upplýsingar um hreinleika | Hvarfgirni |
| Magnprófanir | ||
| Aðferð | Greining | Upplýsingar |
| Þyngdarmæling | Finna þyngdarmun. Óhreinindi fjarlægð og þyngd viðbættra óhreininda í leysiefni fundin. | Þyngd óhreininda |
| Agnatalning grundvölluð á ljósdreifingu | Talning agna í lausn. Díóðuljósmælir mælir styrk ljósdreifingar | Fjöldi og stærð agna |
| Greining á kolefni með oxun | Brennsla á kolvatnsefniskeðjum og mæling á kolefnum | Magn kolefnisóhreininda |
| Yfirborðsgreining með tækjum | ||
| Aðferð | Greining | Upplýsingar |
| Innrauð litrófssjá(IR, IR-RA) | Greinir jarðolíu kolvatnsefna á yfirborði | Magn kolvatnsefnis |
| Sköfun samkvæmt DIN 38409 | Greining kolvatnsefna | Magn kolvatnsefnis |
| Glóðarófsgreining | Greining efna í þykkum lögum | Samsetning |
| Röntgen | Greining efna í þykkum lögum | Samsetning |
| Skönnun, rafeindasmásjá | Greinir samsetningu og magn í þunnum lögum (nm) | Magn og samsetning |
| Atómkraftsjá | Útlit yfirborðs | Grófleiki |